Ok þó að fólk sé alveg hætt að kommenta! (Já ég er að tala
um þig!) hérna kemur smá um ferðina til Tenerife!
Ferðin byrjaði skemmtilega á flugvellinum þar sem ég var á tali
við Magga. (á þeim tíma eina meðlim Grannra og glæsilegra fyrir
utan mig) Við vorum að tala um fólk (bavíanana eins GG kallar
það) og ég sagði: "Sjitt maður ég bara get ekki hugsað í
kringum feitt fólk." Svo þegar við litum við stóð ágætlega
feit kona beint fyrir aftan mig að horfa á okkur... Good
start!!!
Þegar við vorum komin til Tenerife fórum við svo upp á herbergin
og var Konungssvíta Grannra og glæsilegra besta herbergið. Í
því gistu GG og þá verandi heiðursmeðlimur þeirra Biggi
(Girgir)
Þrátt fyrir að það sé margt að segja ætla ég bara að velja það
helsta til að segja frá.
Eitt kvöldið eftir djamm komu Tanja og Maggi frekar full og
settust í rúmmið hjá mér. Tanja útskýrði fyrir mér hvernig
við þrjú værum þau einu í hópnum sem væru Low class. Allir
aðrir væru annað hvort middle eða high class. Það var #hóst#
mjög gaman...
Biggi átti afmæli og það var fínt... engar sögur af því
fyrir utan það að hann var gerður að alvöru meðlimi Grannra og
glæsilegra.
Ok that's about it maybe... ég ætla samt að setja inn
nokkrar setningar sem að við strákarnir fundum upp á sem er hægt að
nota í hvaða aðstöðu sem er. Flokkurinn á eftir að heita
Góðar setningar!
Kommentið